1.4 Mótun svæðis­skipulagsins

Svæðisskipulagsnefnd, skipuð tveimur fulltrúum frá hverju sveitarfélagi Austurlands og einum fulltrúa frá Ferðamálasamtökum Austurlands, hefur haft umsjón með mótun svæðisskipulagsins. Austurbrú hefur stýrt verkefninu fyrir hönd SSA.

Svæðisskipulagsnefnd kynnti verk­efnis­lýsingu vorið 2018. Hlé varð á vinnu í nefndinni 2019-2020 en þráðurinn tekinn aftur upp með nýrri nefnd í ársbyrjun 2021. Frá ársbyrjun 2021 veitti ráðgjafa­fyrirtækið Alta aðstoð við skipulagsgerðina. Ritun texta og gerð skýringar­mynda var í höndum Alta í samvinnu við Austurbrú.

Svæðisskipulagsnefnd kynnti svæðis­skipulagstillögu og umhverfismats­skýrslu í mars 2022, í samræmi við 2. mgr. 23. gr. skipulagslaga og 12. og 14. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana.9

Svæðisskipulagstillagan var birt á vef Austurbrúar og frétt birt á vef hvers sveitarfélags landshlutans og á samfélagsmiðlum og íbúar hvattir til að kynna sér svæðisskipulagstillöguna og senda ábendingar og sjónarmið til svæðisskipulagsnefndarinnar. Sam­­tímis
var tillagan send á lög­bundna umsagnar­aðila og fjölmarga hagsmunaaðila (sjá lista aftast í skjal­inu) með ósk um umsögn innan fjögurra vikna. Tillagan var þá einnig send sveitar­stjórnum til umfjöll­unar.

Þegar kynningartíma lauk var unnið úr umsögnum og ábendingum og ákveðið að gera nokkrar lagfæringar á tillögunni. Í kjölfarið afgreiddi svæðis­skipulagsnefnd og síðan sveitar­stjórnir svæðisskipulags­tillöguna til athugunar Skipulags­stofnunar fyrir auglýsingu.
Stofnuninn veitti umsögn um til­löguna í júní 2022 gerði ekki athuga­semdir við auglýsingu hennar. Tillagan var auglýst 7. júlí 2022 með athuga­semdafresti til 20. ágúst. Svæðisskipulagsnefnd og sveitarstjórnir afgreiddu athugasemdir sem bárust og samþykktu svæðisskipulagið í september 2022 og sendu til Skipulagsstofnunar til staðfestingar.

  • 9 Lög nr. 123/2010 og nr. 151/2021.