1.1 Hlutverk og viðfangsefni
Markmið sveitarfélaga á Austurlandi er að landshlutinn verði sífellt eftirsóknarverðari til búsetu, starfa og ferðalaga. Svæðisskipulagi Austurlands er ætlað að stuðla að þessu markmiði með því að samstilla stefnu sveitarfélaganna á sviði umhverfis, efnahags, samfélags og menningar. Leitast er við að samþætta þessi fjögur svið til að tryggja sjálfbæra þróun, núverandi og komandi kynslóðum í hag.
Svæðisskipulagið skilgreinir nokkur viðfangsefni á hverju sviði út frá:
- Svæðisbundnum málum sem hafa verið til umfjöllunar í sóknaráætlun1 og áfangastaða- áætlun Austurlands,2 sem og á vettvangi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi á liðnum árum.3
- Landslagsskipulagsstefnu 2015-20264 og tillögu Skipulagsstofnunar að viðauka við hana sem fjallar um um loftslag, landslag og lýðheilsu.5
- Heimsmarkmiðum Sameinuðuþjóðanna um sjálfbæra þróun, en þau eru 17 talsins og hvert með nokkur undirmarkmið.6
Lögð var áhersla á að draga fram málaflokka og viðfangsefni sem hafa svæðisbundið mikilvægi en jafnframt gert ráð fyrir að bætt verði inn stefnu um einstök viðfangsefni síðar meir, eftir því sem tilefni þykir til að móta sameiginlega stefnu sveitarfélaganna. Ný viðfangsefni eiga að geta fundið sinn stað í þeim ramma sem svæðisskipulagið setur.
Jafnframt var lögð áhersla á að svæðisskipulagið setti almenna stefnu sem slægi skýran tón fyrir nánari stefnumótun í aðalskipulagi og öðrum áætlunum sveitarfélaganna. Umhverfismat áætlana7 mun gegna mikilvægu hlutverki við tryggja samræmi við svæðisskipulagið sem og við önnur viðeigandi stefnuskjöl.