7.3 Endurskoðun
Að loknum sveitarstjórnarkosningum, á fjögurra ára fresti, skal svæðisskipulagsnefnd koma saman og meta hvort ástæða sé til að endurskoða eða uppfæra svæðisskipulagið.
Skal sú ákvörðun m.a. taka mið af því hvort t.d. landsskipulagsstefna, byggðaáætlun eða aðrar áætlanir kalli á endurskoðun svæðisskipulagsins, en jafnframt verður stefnu svæðisskipulagsins beint til ríkisvaldsins, eftir því sem við á. Enn fremur skal svæðisskipulagsnefnd taka tillit til þess hvort forsendur, t.d. efnhagslegar eða samfélagslegar, hafi breyst og hvort framfylgd svæðisskipulagsins hafi gengið eftir eins og að var stefnt.
Um málsmeðferð á endurskoðaðri áætlun fer sem um gerð nýs svæðisskipulags væri að ræða, eins og mælt er fyrir um í skipulagslögum. Ef niðurstaða svæðisskipulagsnefndar er sú að svæðisskipulagið þarfnist ekki endurskoðunar, heldur það gildi sínu. Tilkynna þarf Skipulagsstofnun um niðurstöðu svæðisskipulagsnefndar um hvort endurskoða beri svæðisskipulagið eða ekki.
Óháð því hvort gerðar eru breytingar á svæðisskipulaginu eða ekki skulu sóknaráætlun landshlutans og aðrar aðgerðar- og þróunaráætlanir sveitarfélaga og stoðstofnanna þeirra endurskoðaðar og uppfærðar reglulega í þeim tilgangi að ná fram markmiðum svæðisskipulagsins.