2.1 Megináskoranir
Helstu áskoranir landshlutans snúast um mannauð, nýsköpun, samvinnu, lýðfræðilegt jafnvægi, heilsufar, menningu og listir, sjálfbærni, hringrásarhagkerfið, landslagssérkenni, menningararf, lofslagsbreytingar og líffræðilega fjölbreytni.
Svæðisskipulagið tekst á við helstu áskoranir sem landshlutinn mun standa frammi fyrir í náinni framtíð. Þær snúast um að:
- Styrkja mannauð og efla nýsköpun.
- Efla samvinnu á milli sveitarfélaga, íbúa og fyrirtækja og stofnana samfélagsins.1
- Stuðla að lýðfræðilegu jafnvægi, góðu heilsufari íbúa og að menning og listir blómstri.2
- Nýta auðlindir með sjálfbærum hætti og stuðla að þróun hringrásarhagkerfis.3
- Vernda og styrkja landslags- sérkenni og menningararf.4
- Takast á við loftslagsbreytingarog styrkja líffræðilega fjölbreytni.5
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna endurspeglast í þessum áskorunum, sem og áætlanir á landsvísu sem sveitarfélögum ber að taka mið af í sinni stefnumótun og skipulagsgerð.6 Þær birtast í áþekkri mynd í fyrri og gildandi áætlunum landshlutans, s.s. sóknaráætlun, áfangastaðaáætlun og
í stefnuskjölum sveitarfélaganna í einstökum málaflokkum.