Svæðisskipulag Austurlands 2022 – 2044 staðfest

Þann 12. október 2022, undirrituðu bæjar- og sveitastjórar Austurlands og forstjóri Skipulagsstofnunar Svæðisskipulag Austurlands 2022-2044. Undirritunin fór fram í Reykjavík en viðstödd voru jafnframt framkvæmdastjóri Austurbrúar, formaður SSA, varaformaður svæðisskipulagsnefndar SSA og fulltrúi ráðgjafafyrirtækisins ALTA.

Vinna við svæðisskipulagið hófst 2016 og hefur fjöldi manns komið að vinnu við svæðisskipulagsgerðina þótt mest vinna hafi farið fram innan svæðisskipulagsnefndar SSA sem fundaði reglulega á meðan svæðisskipulagsgerðinni stóð og naut dyggrar aðstoðar ráðgjafafyrirtækisins ALTA sem sérhæfir sig í skipulagi og byggðamálum.

Svæðisskipulagið var samþykkt af svæðisskipulagsnefnd SSA og sveitarstjórnum á Austurlandi í september 2022. Í kjölfarið var það sent til Skipulagsstofnunar til umsagnar, lauk þeirri yfirferð í byrjun október og var það loks staðfest af Skipulagsstofnun þann 12. október og undirritað af öllum bæjar- og sveitarstjórum landshlutans.

Sjá nánar: Frétt á vef Austurbrúar

Decorative Image